Váá, en gaman að sjá þig hér inni
Ég heiti Agnar Daði 11 ára verðandi atvinnumaður í golfi


Um mig:

Ég er fæddur mánudaginn 5.júlí 1999 á Landsspítalanum í Reykjavík. Þegar ég kom í heiminn þá var ég með mikinn dökkan hárlubba á höfðinu og mjög dökk augu og mamma og pabbi höfðu aldrei séð fallegra barn. Dökku augun mín urðu síðan fallega himinblá og einnig breyttist dökki lubbinn minn í ljóst hár.
Ég er forfallinn golfari og gallharður stuðningsmaður Völsungs og Manchester United.

*Lykilorðið á síðuna mína er nafnið á kisunni sem mamma átti, allt með litlum stöfum. Þið sem ekki vitið hvað það er verið ófeimin við að biðja um lykilorðið með því að senda mömmu póst á joasig@internet.is*


Foreldrar mínir heita Kristján Jakob (´73) og Jóhanna Svava (´76) og einnig á ég 2 yndislegar litlar systur sem mér finnst algjört æði og heita þær Hafdís Inga (´04) og Íris Alma (´08). Kíkið til þeirra líka hér á barnalandinu.

Núna er ég búinn með 4.bekk og mun auðvitað líka að æfa áfram á gítarinn. Bæði skólinn og tónlistin gengur fínt.




Annað:

Afi og amma í sveitinni létu gera litla bæn um nafnið mitt og hún hljóðar svona:

Ljóssins orka lýsi hér
og ljúfan drenginn baði.
Guðleg vættin vaggi þér
vinur Agnar Daði.

Þú ert gestur nr. 47758